Persónuvernd

Persónuverndarstefna

Þessi stefna lýsir því hvernig við vinnum með persónuupplýsingar í appinu, á vefnum, í vefgræjum, API-þjónustu, auglýsingum, áskriftum og þegar þú hefur samband við okkur.

Veðrið er rekið af Veðurguðunum og ábyrgðaraðili er Ólafur Helgi Haraldsson. Hægt er að hafa samband við okkur á [email protected].

Stutta útgáfan

Við reynum að safna sem minnstu. Gögn eru notuð til að sýna veður og færð, reka appið, svara fyrirspurnum, vinna áskriftir, birta auglýsingar og sjá hvort þjónustan virkar.

Hvaða þjónusta fellur undir þetta?

Vefur, app, API og vefgræjur.

Stefnan gildir fyrir Veðrið appið á iOS og Android, vefinn vedrid.is, API á api.vedrid.is, vefgræjur á cdn.vedrid.is, auglýsingar, áskriftir og öll samskipti við okkur.

Appið

Veðrið notar gögn til að sýna veðurstöðvar, veðurmælingar, færð, viðvaranir, uppáhaldsstöðvar, áskriftarstöðu og auglýsingar.

Vefurinn og vefgræjur

Vefurinn birtir upplýsingar, appskjámyndir, tengla, vefgræjur og form. Vefþjónar geta skráð tæknilegar upplýsingar eins og IP-tölu, tíma, slóð og vafra.

API

API-nn er frjálst til notkunar. Við getum skráð tæknileg þjónustugögn til að verja, reka og bæta þjónustuna.

Hvaða gögn?

Gögnin ráðast af því hvað þjónustu þú notar.

  • Staðsetning, ef þú veitir appinu heimild, til að finna næstu stöðvar og gagnlegar upplýsingar. Nákvæm staðsetning er ekki send í Firebase Analytics.
  • Notkunargögn í appinu og á vefnum, til dæmis skjáheimsóknir, síðuheimsóknir, áskriftaraðgerðir, leitartölfræði án hrárrar leitarorðaskráningar.
  • Tæknileg gögn eins og tegund tækis, stýrikerfi, útgáfa apps, IP-tala, tímastimplar og villur.
  • Áskriftargögn, svo sem áskriftarstaða, kaupferli, endurnýjun og notendanúmer sem RevenueCat notar til að tengja áskrift við appið.
  • Auglýsingagögn sem Google Ads þarf til að birta og mæla auglýsingar. Veðrið notar fyrst og fremst ópersónusniðnar auglýsingar nema annað sé sérstaklega tekið fram.
  • Upplýsingar sem þú sendir sem fyrirspurn hér á vef, til dæmis nafn, netfang, fyrirtæki/stofnun, tegund fyrirspurnar og skilaboð. Vefurinn geymir ekki afrit í gagnagrunni; það sendir fyrirspurnina áfram með tölvupósti.

Tilgangur og heimild

Af hverju vinnum við þessi gögn?

Til að veita þjónustuna

Við notum gögn til að sýna veður, færð, stöðvar, vefgræjur, API-svör, áskriftarstöðu og auglýsingar.

Til að reka og verja kerfin

Við notum tæknileg gögn til að finna villur, koma í veg fyrir misnotkun, tryggja afköst og halda þjónustunni aðgengilegri.

Til að svara þér

Ef þú sendir okkur fyrirspurn vinnum við upplýsingarnar sem þarf til að svara henni. Vefurinn geymir ekki skilaboðin heldur sendir þau áfram með tölvupósti.

Til að vinna áskriftir

Apple, Google og RevenueCat vinna með áskriftir, kvittanir og réttindi. Við fáum ekki kortanúmerið þitt.

Til að birta auglýsingar

Auglýsingar hjálpa til við rekstur appins. Google Ads þarf til að birta og mæla auglýsingar.

Til að bæta appið

Við notum samantekin og takmörkuð mæligögn til að greina virkni, bilanir og galla með þjónustu frá Sentry og Firebase.

Vinnsluaðilar

Þjónustur sem geta unnið gögn fyrir Veðrið.

Við notum þjónustur sem eru nauðsynlegar til að reka app, vef, áskriftir, auglýsingar, tölfræði og samskipti.

  • Apple App Store fyrir iOS áskriftir, greiðslur, kvittanir og dreifingu apps.
  • Google Play fyrir Android áskriftir, greiðslur, kvittanir og dreifingu apps.
  • RevenueCat fyrir áskriftarstöðu, kaupheimildir og notendanúmer tengt áskriftum.
  • Google Firebase Analytics til að mæla notkun appsins og vefja.
  • Sentry til safna villum appsins og vefja.
  • Cloudflare til að þjónusta vefþjónustur og tryggja öryggi þeirra.
  • Google Ads til að birta auglýsingar í appinu.
  • Hýsingar-, vef-, tölvupósts- og SMTP-þjónustur sem halda utan um vedrid.is, api.vedrid.is.

Vefkökur og samþykki

Vefurinn notar tæknilega virkni þeirra.

Vefurinn og tengdar þjónustur geta notað nauðsynlegar vefkökur til að birta síðuna, senda gögn og verja kerfið. Vedrid.is notar einnig Firebase Analytics til að mæla notkun vefsins og innbyggðra vefgræja, svo sem síðuheimsóknir, birtingar vefgræju og tæknilegar upplýsingar um vafra og tæki.

Í appinu gilda einnig stillingar iOS og Android, þar á meðal staðsetningarheimildir og persónuverndarstillingar tækisins.

Varðveisla

Við geymum gögn ekki lengur en þörf er á.

Tímalengd fer eftir eðli gagnanna, rekstrarþörf, lögbundnum skyldum og því hvort gögn séu nauðsynleg til að svara beiðnum eða leysa vandamál.

Tæknileg þjónustugögn

Vef- og API-logskrár eru geymdar í takmarkaðan tíma eftir rekstrar- og öryggisþörf.

Áskriftir

Áskriftar- og kvittanagögn eru geymd hjá Apple, Google og RevenueCat samkvæmt þeirra reglum og eins lengi og þarf til að staðfesta áskrift.

Réttindi þín

Þú getur haft samband.

Samkvæmt persónuverndarlögum getur þú óskað eftir aðgangi, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu eða andmælt vinnslu, eftir því sem við á.

Sendu beiðni á [email protected]. Ef málið tengist áskrift er mikilvægt að senda notendanúmerið sem sést í appinu undir Meira og kassinn Áskrift.

Þú getur einnig sent kvörtun til Persónuverndar ef þú telur að vinnsla persónuupplýsinga fari ekki rétt fram.

Fyrirvari

Veðrið er ekki opinber ferðaráðgjöf.

Veðrið birtir gögn frá opinberum og tengdum gagnaveitum, en ber ekki ábyrgð á réttleika, töfum, bilunum eða ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinganna.

Staðfestu alltaf mikilvægar ferðaupplýsingar hjá opinberum aðilum, þar á meðal í síma 1777 og í viðeigandi þjónustum.

Breytingar

Við uppfærum stefnuna þegar þjónustan breytist.

Síðast uppfært 17. maí 2026. Ef við breytum gagnasöfnun, auglýsingum, áskriftum, vinnsluaðilum eða öðrum mikilvægum þáttum munum við uppfæra þessa síðu.