Leiðbeiningar
Spá, tilkynningar og stillingar.
Flest val er undir Meira og Stillingar í appinu. Kerfisstillingar símans ráða þó alltaf staðsetningarheimildum, tilkynningaheimildum, hljóði, hljóðlausri stillingu og Focus.
Veðurspá
Á stöðvarsíðu er Veðurspá sérstakur kassi frá yr.no / MET Norway fyrir hnit stöðvarinnar. Þar sjást næstu klukkustundir og dagar, vindur, hviður, úrkoma, raki, UV og hita- og úrkomulínurit þegar gögnin eru tiltæk.
Veðurathugun sýnir það sem stöðin mældi. Veðurspá horfir fram á við. Lifandi mælingar, viðvaranir og LOKAÐ ganga alltaf framar spánni við ferðákvarðanir.
Tilkynningar
Merktu fyrst stöðvar sem uppáhalds. Í Stillingum má síðan kveikja á tilkynningum um vind og hviður, LOKAÐ og virkar viðvaranir eða Bongó og velja vindviðmið, daga og tíma.
Tilkynningar eru valfrjálsar. Staðfestu að heimild og hljóð séu virk fyrir Veðrið í kerfisstillingum símans.
Ef hljóð heyrist ekki
Notaðu Prófa tilkynningahljóð í appinu. Athugaðu síðan Hljóð fyrir Veðrið í tilkynningastillingum símans og hvort hljóðlaus stilling eða Focus sé virkt. Appið getur ekki hnekkt hljóðlausri kerfisstillingu.
Tungumál og skjár
Veldu Íslensku, English, Deutsch, Français eða Polski. Þar má einnig velja 1-12 nálægar stöðvar, setja nálægar stöðvar efst og halda skjánum vakandi meðan appið er opið.
Skráningarstaða
Stillingar sýna hvort síminn og reglur uppáhaldsstöðva séu skráð fyrir tilkynningar. Ef staðan þarfnast athugunar skaltu velja Reyna skráningu aftur. Þar má einnig endurstilla eða gleyma tilkynningaskráningu þessa síma án þess að eyða uppáhöldum eða áskrift.