Apple og Google eru greiðslu- og áskriftarvinnsluaðilar í appinu. Þau sjá um greiðsluna og halda utan um áskriftina.
Áskriftir í Veðrinu
Áskriftir
Áskrift í appinu er einföld leið til að styðja rekstur og halda þjónustunni gangandi.
Veðrið er flókinn rekstur í frítíma, það þarf að reka API-þjónustur, vefþjóna, lén, kortagögn, viðvaranir ásamt appi í iOS og Android. Áskrift hjálpar okkur að greiða fyrir þann rekstur á öllum þessum þjónustum og halda gögnunum opnum.
Það er engin skylda að vera í áskrift. Þú getur notað appið með auglýsingum og kjarnavirknin er sú sama. Virk áskrift fjarlægir auglýsingar og styður áframhaldandi rekstur og þróun.
Hvernig virkar þetta?
Apple eða Google.
Þegar keypt er áskrift í appinu sér Apple eða Google um greiðsluna, kvittunina, endurnýjunina og uppsögnina. Við fáum aldrei kortanúmerið þitt.
- Á iPhone fer áskriftin í gegnum App Store og Apple reikninginn þinn.
- Á Android fer áskriftin í gegnum Google Play og Google reikninginn þinn.
- Þú stýrir áskriftinni sjálf/ur í App Store eða Google Play eða í appinu.
- Þú getur sagt upp áskriftinni hvenær sem er.
Gögnin eru opin
Áskrift lokar ekki gögnin inni.
Við viljum að fólk geti byggt þjónustur á veðurgögnunum. API-ið er áfram frjálst til notkunar fyrir þau sem vilja prófa, tengja, byggja eða birta gögnin á öðrum stöðum.
Spurningar
Vantar þig aðstoð með áskrift?
Ef eitthvað virkar ekki, sendu okkur línu og láttu fylgja með hvaða tæki þú notar, hvort þú ert á iOS eða Android, og hvað gerist í appinu. Mikilvægt er að senda notendanúmerið sem þú sérð í appinu undir Meira og Áskrift svo við getum séð hvað vandamálið er við áskriftir.